Selja. Hætta. Eyða. Segja nei. Ganga í burtu.
En kannski er til önnur útgáfa.
Að sleppa tökunum án þess að kasta hlutnum frá sér.
Við byggjum ýmislegt yfir ævina. Fyrirtæki, sambönd, færni, hugmyndir, kerfi, tengsl og verkefni.
Það að eitthvað fái ekki lengur mestan tíma okkar þýðir ekki að það hafi misst gildi sitt.
Kannski getur eitthvað sem við höfum byggt haldið áfram án þess að við stöndum yfir því allan daginn.
Mér finnst þetta svolítið erfitt.
Sérstaklega þegar maður hefur sterka ábyrgðartilfinningu. Þá er auðvelt að rugla saman því að bera ábyrgð og því að þurfa sjálfur að halda utan um allt.
Ég er ekki viss um að ég hafi lært þetta til fulls.
En mér finnst spurningin gagnleg:
Hvað í lífi mínu þarf raunverulega á mér að halda, og hvað þarf bara að fá að standa?